Bíómynd og bók
12. janúar 2007
Fregnir af nýrri bók og bíómynd hafa vakið áhuga minn. Sameiginlegt eiga þær að skoða Þýskaland og seinni heimstyrjöldina í óvenjulegu ljósi. Bíómyndin heitir "Mein Führer - Die wirklich wahrste Wahrheit über Adolf Hitler" (imdb) sem mætti útleggja sem "Foringinn — hinn virkilega sanni sannleikurinn um Adolf Hitler" og var frumsýnd í Þýskalandi í gær. Í henni er gert stólpagrín að Hitler, nokkuð sem ég held að ekki hafi áður verið gert í þýskri bíómynd. Hægt er að skoða trailer Mein Führer á YouTube.
Bókin heitir The Book Thief og er eftir Markus Zusak. Kaldhæðin saga um munaðarlausa stúlku í Þýskalandi í seinni heimstyrjöldinni — sögumaðurinn er Dauðinn. Fjölda góðra ritdóma er að finna um hana á Vefnum og ég er nú þegar búinn að setja hana á pöntunarlistann minn hjá Amazon. Rótina að bókinni sagði Markus í viðtali á BBC vera sögur móður hans frá seinni heimstyrjöldinni í Þýskalandi og hvernig þær gáfu honum allt annað sjónarhorn á heim sögusviðsins. Til dæmis hvernig móðir hans var sett í hitlersæskuna en ákvað eftir fyrsta daginn, sem fól í sér endarlausar æfingar á gæsagangi, að skrópa framvegis.

13. janúar 2007 kl. 10.59
Hvort tveggja hljómar áhugavert. Ég er einmitt með eina mynd um Hitler sem stendur til að horfa á fljótlega: Der Untergang. En ég held ekki að það sé neitt fyndið við hana.
14. janúar 2007 kl. 2.36
Já, ég hef ekki séð Der Untergang. Það var einhver styr um hana í Þýskalandi í
fyrrahitteðfyrra þar sem hún sýndi Hitler í nokkuð persónulegu ljósi, sem mannveru en ekki skrýmsli. Nú er að sjá hvort þjóðverjar geti hlegið að honum.