Nýi-Landsbankinn, Nýi-Glitnir og Nýja-Kaupþing
15. október 2008
Mér sýnist vera þörf á því að benda á að nöfn nýju bankanna á að rita með bandstriki skv. ritreglum. Þeir heita sem semsagt Nýi-Landsbanki, Nýi-Glitnir og umturnað Kaupþing mun heita Nýja-Kaupþing. Um þetta gilda sömu reglur og um Nýja-Garð, Norður-Ameríku og Valla-Ljót svo nokkur dæmi séu tekin.
